Hlýtt :)
12.5.2009 | 08:23
Það er svona rjómablíðan hérna
er soldið syfjuð, hef verið að fara alltof seint að sofa í smátíma núna en það lagast, vonandi
Vorið leggst bara svona svakalega vel í mig og sumarið gerir það örugglega líka
Langar næstum því til að stinga upp kartöflugarð á lóðinni
það gengur nú kannski yfir
sjáum til með það en væri sjálfsagt ekkert vitlaus hugmynd, að vísu þótti mér nú aldrei sérdeilis gaman að þessu kartöflugarðspoti í gamla daga en hver veit, finnst það kannski núna
Hætt núna
Athugasemdir
Það má kalla þjóðlegasti siður, þetta að pota útsæðinu niður, úti í garði, undir morgunsól Hugmyndin er góð, ég kem svo og tek upp með þér Hvað á það annars að þýða að fara svona seint að sofa heillin ?
Birna Dúadóttir, 12.5.2009 kl. 08:45
Treysti á þig lífið er bara svo skemmtilegt á kurteislegan hátt að ég hef ekki tíma til að sofa
Erna Evudóttir, 12.5.2009 kl. 08:53
Það er hægt að kaupa þær í búð... örugglega líka þarna í sveitinni
Jónína Dúadóttir, 12.5.2009 kl. 09:05
Jú hef stundum séð það
Erna Evudóttir, 12.5.2009 kl. 09:07
Já er það ekki ?
Jónína Dúadóttir, 12.5.2009 kl. 09:38
Berfætt að rækta lífrænt, sé þetta alveg fyrir mér, með moldina á milli tánna haha
Birna Dúadóttir, 12.5.2009 kl. 10:35
Já einmitt það er svo ég, verst að ég á ekki smábarn, gæti bundið það á bakið á mér
Erna Evudóttir, 12.5.2009 kl. 11:08
Þú bindur bara "hvolpinn" á bakið
Birna Dúadóttir, 12.5.2009 kl. 12:37
Já einmitt :)
Erna Evudóttir, 12.5.2009 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.