Eitthvað sér sænskt!

Ég á að skrifa um eitthvað sér sænskt fyrirbrigði í skólanum og eitt af því sem mér dettur í hug er það sem hægt er að lesa í blöðunum fyrir jól td : 10 ráð til að lifa af jólin með ættingjunum!  Það er sko ekkert verið að grínast, þetta eru alvöru ráð!  Nú eða að lenda í kaffiboði í Smálöndum þar sem þú færð einn kaffibolla og kakan er skorin í akkúrat jafn marga bita eins og gestirnir eru margir!  Svo þegar búið er að drekka kaffið og borða kökusneiðina þá er farið og sest annarsstaðar og ekki reyna að taka með kaffibollann með þér og Guð forði þér frá því að spurja hvort það sé til meira kaffi, þá ertu nú búin að koma þér útúr húsi hjá því fólki, been there, done that!  Best að taka fram að þetta var ekki heima hjá Gunnari og ekki heima hjá Jóku!  Sjálfsagt eru ekki allir svona í Smálöndum en þó nokkrir samt  þar sem ég hef verið svo heppin? að vera boðin í kaffi! Ýmislegt fleira sem mér dettur í hug að skrifa um en á bara að vera 1/2 til 1 síða svo ég verð að hafa hemil á mér!Beware of the Bear when he tucks in his shirt!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég hef lend í þessu en ekki oft... guð sé lof

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.9.2007 kl. 19:35

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Komiði bara í kaffi til mín elskurnar, alltaf nóg til og helst aðeins meira en það

Jónína Dúadóttir, 2.9.2007 kl. 20:56

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Jú takk Ninna mín veit það!

Erna Evudóttir, 2.9.2007 kl. 21:21

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Þetta er auðvitað gífurlegur sparnaður,Ha

Birna Dúadóttir, 2.9.2007 kl. 21:28

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já, sérstaklega þegar þú færð gestina ekkert aftur

Jónína Dúadóttir, 3.9.2007 kl. 06:58

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Og um hvað skrifaðir þú svo ?

Jónína Dúadóttir, 4.9.2007 kl. 07:30

7 Smámynd: Erna Evudóttir

Ég hafði hemil á mér og skrifaði um 10 ráð til að lifa af að umgangast ættingjana um jólin, þetta kemur á hverju ári

Erna Evudóttir, 4.9.2007 kl. 08:02

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ertu að meina í alvöru að það þurfi að segja fólki til með þetta ?

Jónína Dúadóttir, 4.9.2007 kl. 12:20

9 Smámynd: Erna Evudóttir

Ójá þetta virðist vera alveg hræðileg upplifun

Erna Evudóttir, 4.9.2007 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband