Reynslan hefur sýnt ....... !
20.3.2010 | 09:17
Það er sko þetta með að læra af reynslunni, ég bjó einusinni á litlum stað á Vesturlandi og sú reynsla kenndi mér að ég ætlaði aldrei að eiga heima þar aftur
hef líka staðið við það
Ég hef gert fullt af vitleysum, misskemmtilegum og lært af þeim að endurtaka þær ekki, sumar hafa líka verið það ótrúlega skemmtilegar að ég hef gert þær aftur og aftur
en það er nottla val sem maður á
Ég hef lært heimspeki
ætla aldrei að gera það aftur
ég hef gleymt sokkunum mínum í húsi á Akureyri
eeeeh wont happen again
Nú ég bjó líka einusinni í Keflavík og ætla aldrei að eiga heima þar aftur, stend örugglega við það
Speki dagsins er : Gerðu endilega vitleysur en endurtaktu bara þær sem þú hefur gaman að
slepptu hinum
Vá þetta er sko ekkert venjulega djúp pæling
annað líka, ekki gott að koma sér í þá aðstöðu að upplifa : shit er ég búin að eyða öllum þessum tíma í þennan bjána eða þetta rugl, það er ekki góð tilfinning, þessvegna skiptir öllu máli að vera í núinu og meðvitaður um það sem maður/kona er að gera, alltaf
Góðar stundir
Athugasemdir
Ertað meina mig ? Get nú alveg lesið það á milli línanna.... Nei bara grín svona, speki dagsins er dásamleg og algert must að fara eftir
Jónína Dúadóttir, 20.3.2010 kl. 09:26
Hehehe nei ekki þig, ekki einusinni á rússnesku
Erna Evudóttir, 20.3.2010 kl. 09:41
Ég veit það, enda get ég aldrei lesið neitt á milli línanna hjá fólki, get bara lesið orðin sem eru skrifuð... líka þó þau séu á rússnesku
Jónína Dúadóttir, 20.3.2010 kl. 10:32
Held að það sé smá króatíska í þessu, tek það til mín
Birna Dúadóttir, 21.3.2010 kl. 16:30
Birna mín þú misskilur þetta alveg fullkomlega rétt
Jónína Dúadóttir, 22.3.2010 kl. 07:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.