Að hella í hárið eða fá sér í tána :))
16.5.2010 | 01:23
Já ég drakk brennivín hérna á árum áður og landa og bara svona flest sem rann
Svona eins og þetta gekk fyrir sig í daga þá var þetta aldrei spurning um hvort maður ætlaði að byrja að drekka heldur bara hvenær
Ég gerði mér nú fljótlega grein fyrir því að þetta væri nú ekki alveg að gera sig fyrir mig en hin frábæra uppfinning afneitunin kom þá sterk inn og ég hélt þessu áfram með hinum ýmsu afleiðingum sem þó voru ekki nógu alvarlegar til að ég sleppti þessu! Mér reiknast til að ég hafi eytt svona tólf árum í þetta rugl mitt áður en ég fór á Vog og svo Staðarfell og það er það besta sem ég hef gert svona fyrir utan það að eiga börnin mín
Síðan hafa liðið nokkur ár, nokkuð mikið fleiri en árin sem ég drakk og ég er voða fegin og ennþá alveg jafn sannfærð um að ég og brennivín, landi eða bjór eigum bara allsekki og enganveginn samleið
Þetta virkar einn dag í einu
Góðar stundir
Athugasemdir
Ok ég verð að segja að helv... landinn gat nú verið fínn, en það er jú þetta með afleiðingarnar Þú ert snilli
Birna Dúadóttir, 16.5.2010 kl. 10:33
Jú landinn var alveg fínn sko, ja amk áhrifin, tek nú ekkert ofan fyrir bragðinu
Erna Evudóttir, 16.5.2010 kl. 10:55
Elskan mín, bragðið var....... algert aukaatriði
Birna Dúadóttir, 16.5.2010 kl. 11:03
Erna Evudóttir, 16.5.2010 kl. 17:47
Ég gat aldrei orðið almennilegur alki af því að bragðið skipti meira máli......
Jónína Dúadóttir, 18.5.2010 kl. 13:39
Nei þú ert nú bara leim sko
Erna Evudóttir, 18.5.2010 kl. 19:16
Já ég veit... og hef alltaf liðið fyrir það.....Já eða þannig sko
Jónína Dúadóttir, 18.5.2010 kl. 20:24
Ninna mín, þú ert og verður alveg vonlaus fyllibytta
Birna Dúadóttir, 18.5.2010 kl. 21:06
Já þegar ekki einusinni vonin er eftir þá bara byggir mar 3 hæða sólpallhöllhýsi á lóðinni
Erna Evudóttir, 18.5.2010 kl. 22:13
Birna Dúadóttir, 18.5.2010 kl. 22:34
...sólpallhöllhýsi.... ok góð lýsingAlgerlega misheppnaðar fyllibyttur gera svo mikið svoleiðis palla...
Jónína Dúadóttir, 19.5.2010 kl. 06:17
Nákvæmlega, þess vegna á ég ekki sólpallahjólhýsi, ég er almennileg fyllikunta skal ég segja þér Haha þú veist það kannski nú þegar
Birna Dúadóttir, 19.5.2010 kl. 09:35
Já Birna mín þú ert alvöru fyllikunta, hehehehehe
Erna Evudóttir, 19.5.2010 kl. 16:56
Já ég veit það, þú ert þarna fylli.... þarnasemþúsagðir....
Jónína Dúadóttir, 19.5.2010 kl. 20:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.