Safnið
9.6.2007 | 20:12
Fór á safnið hérna í dag að sjá nýju sýninguna sem er byggð upp kringum eldgamlar beinagrindur sem fundust hérna í Linköping fyrir nokkrum árum síðan, rosalega gaman að skoða þetta! Röltum svo um í bænum og borðuðum ís sem er alveg skylda í svona miklum hita, held það hafi farið upp í 30 stig í dag sem er aðeins of mikið! Nú ég og tengdadóttir föðurömmu minnar höldum helst að Birna hafi verið Halimalað þarna á Krít fyrir nokkra úlfalda, veit ekkert hvort það eru til úlfaldar þar, ef ekki hafa þeir örugglega verið fluttir inn sérstaklega bara af því að það var von á Birnu
Athugasemdir
Hvað skyldu hafa fengist margir úlfaldar fyrir hana ? Og eigum við, ættingjar hennar ekki rétt á minnsta kosti einum ?
Jónína Dúadóttir, 10.6.2007 kl. 08:11
Jú það er alveg það minnsta, fáum okkur bara lögfræðing ef úlfaldarnir koma ekki fljótlega í póstinum
Erna Evudóttir, 10.6.2007 kl. 08:59
Hvernig sendir maður úlfalda í pósti ? Skiptir máli hvort hann er í kassa eða umslagi ?
Jónína Dúadóttir, 10.6.2007 kl. 10:53
Veit ekki hversu þróaðir þeir eru á Krít, koma kannski bara með pósthestum
Erna Evudóttir, 10.6.2007 kl. 11:03
Skemmtilega klikkuð hugmynd að senda úlfalda í umslagi
Birna Dúadóttir, 10.6.2007 kl. 17:22
Veistu hvernig er best að senda þá milli landa ? Annars er það ekkert vandamál fyrst þú ert komin heim
Jónína Dúadóttir, 10.6.2007 kl. 20:27
Það gæti nú samt verið gagnlegt að kunna það, maður veit aldrei...
Jónína Dúadóttir, 12.6.2007 kl. 06:24
Ég var að skoða gömlu myndirnar... æðislegt.
Sjáumst á föstudaginn.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.6.2007 kl. 20:53
Aha, Gunnar gaman að sjá þig á blogginu
Jónína Dúadóttir, 12.6.2007 kl. 21:03
Af hverju er ég ekki alveg að átta mig á hver Gunnar er??Er hann tengdasonur,tengdadóttur einhvers eldri manns
Birna Dúadóttir, 13.6.2007 kl. 11:44
Er það með þig eins og mig, að þú hefur ekki enn verið svo heppin að hitta umræddan Gunnar í hans eigin, án alls vafa, glæstu persónu?
Jónína Dúadóttir, 13.6.2007 kl. 11:56
Gleymdi alveg að commenta á ættfræðina, svarið er : Já !
Jónína Dúadóttir, 13.6.2007 kl. 11:57
Yes Gunni minn, verður gaman að hitta ykkur as always
Erna Evudóttir, 13.6.2007 kl. 13:32
Hey, gaman að hitta ykkur Gunni, long time no see!!! Rosalega er alster.se orðin flott, þú ert snillingur!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 14.6.2007 kl. 01:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.