Draumar!
12.8.2007 | 08:09
Að eiga drauma er alveg nauðsynlegt fyrir alla held ég en svo er innihaldið misjafnt eftir fólki! Þegar ég var barn þá vildi ég verða skæruliði þegar ég yrði stór því Yasser Arafat mátti hafa viskustykki á höfðinu og það fannst mér kúl! Ég á ennþá drauma eða sko það er ýmislegt sem mig langar til að gera eins og að fara í fallhlífarstökk og skoða söfn í París! Svo er líka ýmislegt sem mig hefur ekki dreymt um að lenda í eins og td að líf mitt væri eins og sápuópera sem hefur stundum verið í gangi, trust me það er ekki eins spennandi og það lítur út í sjónvarpinu
. Þetta var hugleiðing dagsins gott fólk svona á sunnudegi! Hafiði góðan dag!
Athugasemdir
Talandi um að bonda systir góð,mig langaði víst aldrei að verða skæruliði og í fallhlifastökk fer ég ekki.En restin td sápuóperan og París.Mér dettur stundum í hug með mitt líf,Bóld end bjútifúl,á stöð tvö alla virka daga.Allir á öllum,í dái,eignast börn um sextugt osfrv.
Birna Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 11:09
Draumarnir ykkar eru dásamlegir dömur mínar
Jónína Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 11:37
Er semsagt planið að eignast næsta barn um sextugt í dái?
Erna Evudóttir, 12.8.2007 kl. 12:08
Ég fékk kast
Birna Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 12:52
Varla kallast það nú draumur, frekar martröð vil ég meina
Jónína Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 12:52
Jú akkúrat en misjafn er smekkur manna og kvenna
Erna Evudóttir, 12.8.2007 kl. 13:02
Gleymdi að taka það fram, að ég skil svo vel þetta með fallhlífastökkið, mig hefur alltaf langað til þess líka. Hoppum saman
Jónína Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 15:03
Í sömu fallhlíf?
Erna Evudóttir, 12.8.2007 kl. 15:45
Nei takk heillin
Jónína Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 18:57
Ok we have a date
Erna Evudóttir, 12.8.2007 kl. 20:16
Ég skal vera niðri með dýnur og kodda og hreinar buxur
Birna Dúadóttir, 12.8.2007 kl. 23:31
Takk Birna mjög nauðsynlegur búnaður
Erna Evudóttir, 13.8.2007 kl. 05:46
Birna er svo gott fólk að vera svona til staðar fyrir okkur
Jónína Dúadóttir, 13.8.2007 kl. 07:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.