Nóvember!
3.11.2007 | 08:40
Það er kominn nóbember og hérna hjá mér er rigning, grasið er ennþá grænt en laufin að vísu meira og minna farin af trjánum! Á ennþá erfitt með hvað það vantar skýr skil milli árstíða hérna, haustið getur þessvegna verið fram í janúar ef maður er virkilega óheppinn, þetta er svolítið eins og að búa í Reykjavík, sællar minningar!
Ég hef búið nógu oft þar til að vita að ég vil ekki gera það aftur, fínn staður til að heimsækja
Nú hringdi síminn og ég man ekkert hvað ég ætlaði að skrifa hérna
Það venst! Vona bara að þið eigið ánægjulegan laugardag, ég er að fara með Evu á Aikidoæfingu eftir 2 tíma, gaman að því
Athugasemdir
Skilaðu kveðju til krakkanna frá mér, ég sá þessar líka flottu myndir af þeim hjá ömmu þeirra í gær Eigðu líka góðan laugardag heillin
Jónína Dúadóttir, 3.11.2007 kl. 12:33
Takk geri það! Á skíðum skemmti ég mér, trallallalla, þú ert að syngja það núna er það ekki? Er ekki ennþá snjór?
Erna Evudóttir, 3.11.2007 kl. 13:54
Það hlánaði í gær og er 5 stiga hiti núna, en snjórinn fór samt ekki alveg og ég er ekki að syngja á skíðum neitt.... ég er að raula jólalög með sjálfri mér og sauma út jóladúkinn sem þú gafst mér
Jónína Dúadóttir, 3.11.2007 kl. 14:02
Jóla hvað,alltof snemmt.Er ekki hægt að fresta þeim fram í mars
Birna Dúadóttir, 3.11.2007 kl. 17:27
Hey,Erna,segðu mars
Birna Dúadóttir, 3.11.2007 kl. 17:28
Snemmt hvað ... fyrir jóla hvað...
Jónína Dúadóttir, 3.11.2007 kl. 18:29
Marsssssssssssssssssssssssss!
Erna Evudóttir, 3.11.2007 kl. 19:24
Apríl!
Jóhanna Pálmadóttir, 4.11.2007 kl. 13:15
Deeeeeesembeeeeeer
Jónína Dúadóttir, 4.11.2007 kl. 14:33
Birna Dúadóttir, 4.11.2007 kl. 22:52
Er tilvistarkreppan hans Jenna ekki orðin heldur ströng.Heldurðu að hann rétti ekki úr sér bráðum
Birna Dúadóttir, 5.11.2007 kl. 20:41
Vonum það, eitthvað svo einkúkaleg tilhugsun að hafa hann svona krepptan
Jónína Dúadóttir, 5.11.2007 kl. 21:32
Einkúkaleg tilhugsun, er það norðanhnífaparamállýska?Konan er snillingur!
Erna Evudóttir, 5.11.2007 kl. 22:07
Úhhh, nei góða engin svoleiðis mállýska, beint úr Borgar óttans menningunni eða þar um kring, eitthvert lag : Ég er kúkur í lauginni og fæ aldrei bréf.... eða póst eða.... Gott ef litlu systur mínar kenndu mér það ekki bara..... ;-)
Jónína Dúadóttir, 5.11.2007 kl. 22:49
Húkkers,flott erða
Birna Dúadóttir, 5.11.2007 kl. 23:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.