Tuskuæði!
13.3.2008 | 10:02
Það tók sig upp gamalt tuskuæði hjá mér en er að ganga yfir sem er gott
Erfitt að eiga við þetta stundum en held mér sé að takast að losna við þetta
Var á skólaráðsfundi í gærkvöldi sem var bara gaman, það á að leggja niður skólann í hverfinu sem ég bý í en ekkert búið að ákveða hvað verður um krakkana
kemur allt í ljós, þarf ekki að hafa áhyggjur af því þar sem þetta verður sjálfsagt ekki fyrr en á næsta eða þarnæsta ári! Nú svo virðist vorið vera komið, Eva kom heim í gær með blóm sem hún hafði tínt á leiðinni heim úr skólanum, þetta er nú soldið skrýtið því veturinn kom aldrei
Núna eru ca 3 mánuðir þangað til við flytjum, skrýtið hvað tíminn líður hratt en samt hægt
Nóg um það, over and out
Já alveg rétt, flott húsið hennar Ninnu (og Jóa)
Athugasemdir
Ég hef fulla samúð með þér í tuskuæðinu og þakka þér fyrir að segja að húsið mitt (okkar) sé flott. Þú átt eftir að sjá það betur, næst þegar þú kemur í heimsókn
Jónína Dúadóttir, 13.3.2008 kl. 12:17
Geri það örugglega, hvenær flyturu inn?
Erna Evudóttir, 13.3.2008 kl. 12:21
Æi á undan þér vonandi.... það á að skrifa undir kaupin á húsinu okkar vonandi ekki seinna í næstu viku, dróst um viku. Og þá skrifum við undir og flytjum inn hið snarasta
Jónína Dúadóttir, 13.3.2008 kl. 12:25
Alveg sammála,flott húsið hennar Ninnu,ok Jóa líkaÞegar tuskuæðið kemur yfir þig,þá áttu bara að setjast í sófann og horfa á það(æðið)líða framhjá,ég geri það eiginlega alltaf
Birna Dúadóttir, 13.3.2008 kl. 12:37
Reyni það næst, held ég sé ekki læknuð af þessu enn
Erna Evudóttir, 13.3.2008 kl. 12:47
Finn fyrir þér
Birna Dúadóttir, 13.3.2008 kl. 12:52
Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.3.2008 kl. 14:29
Góðan daginn heillin góð
Jónína Dúadóttir, 17.3.2008 kl. 08:15
Hvar ertu ? Við skrifum undir á miðvikudaginn !!!!!
Jónína Dúadóttir, 19.3.2008 kl. 07:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.