Gaman :)
12.11.2009 | 21:47
Með Guðs hjálp og góðra manna
er ég búin að finna tattoið sem mig langar í
Frábært, geri í því að fá mér það asap eftir að ég kem heim
Annars er ég góð, langbest eiginlega held ég, er að fara til Jóku og co á laugardaginn, verður gaman að því, hef ekkert komið til hennar eftir að hún flutti
I am multitasking, blogga, hlusta á tónlist og að hjálpa Axel að læra fyrir sænskuna
Hef verið að hugsa um þakklæti síðustu dagana, ég hef svo margt til að vera þakklát fyrir, til dæmis eru börnin mín heilbrigð, það er nú ekkert sjálfsagt í þeim málum
nú ég er kannski ekki alveg heil á geði en ég hef allavega heilsu til að sitja hérna og bulla, sem er gott
Ég ætla amk að njóta alls þess sem lífið hefur uppá að bjóða
Hætt í bili
Athugasemdir
Ég verð ekki lengi heil á geði ef þú ætlar að hafa þetta útlit á blogginu þínu
Jónína Dúadóttir, 12.11.2009 kl. 23:22
Nei ekki ég heldur, veit ekki einusinni hvernig mér tókst þetta, hehe .
Erna Evudóttir, 13.11.2009 kl. 01:30
Þetta er ferlega flott lúkk, eitthvað svo "professional" Maður gæti alveg haldið að þú hefðir alveg vitað hvað þú varst að gera Slepptu því að verða heil á geði, það fer okkur ekki Have fun í Sverige, áður en þú veist af ertu komin heim í sveitina
Birna Dúadóttir, 13.11.2009 kl. 08:49
Þetta er flott
Jónína Dúadóttir, 13.11.2009 kl. 08:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.