Aflatölur eða bókmenntir :)
13.12.2009 | 23:04
Það er nebblega the big question
nei nei bara svona smá djók í gangi en athyglisvert samt
Enn ein indælishelgin afstaðin, mánudagur á morgun sem er bara gott mál, verður að vísu heldur meira að gera en venjulega en það er bara gaman
Fór í kirkju í dag sem var bara gott en note to self : ekki fara í kirkju ef þú hefur farið seint að sofa kvöldið áður! Kirkjur gera mig alltaf syfjaða svo það er nú ekki á það bætandi að vera svefnlaus
Vorum að fá nýjan prest í plássið og það var verið að setja hana í gang í dag
hún á að ferma hann Ívar minn í vor, 1.apríl kl.13.30 to be exact
það verður ábyggilega hið flottasta partý! Nú hún nafna mín í Jönköping hefur náð hinum virðulega aldri 5 ára og var hún bara hress miðað við aldur og fyrri störf þegar við töluðum við hana í morgun
En ég ætla að fara að sofa snemma, hmm klukkan að verða ellefu, en það er snemma fyrir mig á þessum síðustu og verstu tímum
Hasta la Vista baby
Athugasemdir
O það er svo gott að sofa í kirkjum og ljósabekkjum Presturinn var settur í gang segirðu. Ég sá fyrir mér að hún væri trekkt upp á bakinu, svona stór lykill sem er snúið
Birna Dúadóttir, 14.12.2009 kl. 09:24
Mér datt í hug það sama og Birnu... með prestinn... "Prestuna" á þessum síðustu og verstu feministatímumÞað væri nú samt betra að sofa í kirkjum ef það væri hægt að halla bökunum á bekkjunum...Hálf tvö fyrsta apríl, panta strax frí í vinnunni... hvort sem ég á að vinna þá eða ekki !
Jónína Dúadóttir, 14.12.2009 kl. 13:50
Jamm ég er búin að bóka mig í frí, ekki seinna vænna seggggðu
Birna Dúadóttir, 14.12.2009 kl. 13:55
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið... vonandi nægur tími þetta
Jónína Dúadóttir, 14.12.2009 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.