Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
Skápafjölgun :)
30.12.2009 | 13:21
Já skápar geta fjölgað sér
Til hamingju með TUTTUGU árin þín Birna mín
þó þú hafir nú eins og ég fengið edrúmennskuna á silfurfati, þá er þetta nú bara nokkuð gott hjá þér
Skemmtu þér vel í dag sem alla aðra daga
Heilsur til þín héðan úr litla þorpinu á Austfjörðum sem ég man ekki alveg hvað heitir í augnablikinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sígaunagenið :)
29.12.2009 | 15:04
Já það er þarna genið sem gert hefur að verkum að ég hef látið mig hafa það að flytja milli landa og staða eins og ekkert sé sjálfsagðara
Það er eitthvað að bögga mig þessa dagana, finnst að snaran sé að herðast að hálsinum á mér
Ok ég bjó í borg stærri en Borg óttans og bý núna í litlu þorpi austur á landi þar sem allt verður að huge project ef eitthvað á að ske eins og að kaupa skó eða föt á krakkana, hmmmm þetta er kannski bara eðlileg tilfinning eða hvað
Að láta mér leiðast og vera eirðarlaus er ekki neitt sem ég vil eyða tímanum í, no matter what
Þarf að skoða þetta eitthvað, geri það í rólegheitum, eeeh hvað annað, semsagt í litlu þorpi austur á landi, bara rólegheit
Að vera á faraldsfæti er áhugavert, eru faraldrar með fætur ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Skrýtið!
21.12.2009 | 11:36
Það er margt skrýtið og skrýtnast er að Einar minn verður ekki hjá mér á jólunum í fyrsta skipti í tuttugu og eitt ár
Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta telst nú sjálfsagt gangur lífsins og ég hef verið að reyna að hugsa það svoleiðis en IT STINKS
Oftast er mér alveg sama þó ég vaði ekki í peningum en akkúrat núna væri það fínt, þá gæti ég sent honum og Jojo miða svo þau geti komið og verið hjá okkur ! En allavega þá er Axel að koma heim um jólin og það er gott, verður heima alveg þangað til 13.janúar, gaman að því
Nú ég hef verið að reyna að komast til Slow Town síðan á laugardaginn og er ekki komin þangað enn, döööööh, en geri aðra tilraun á morgun og svo heim á Þorláksmessu eða Aðfangadagsmorgun
Nú ég hef ekki sent nein jólakort í ár, hef verið voða tóm eitthvað síðan ég kom heim frá Svíþjóð, mikið að gera í vinnunni svo ég bara gleymdi þessu alveg þangað til það var of seint, sendi bara fleiri fyrir næstu jól
Nú ég þarf að komast í klippingu og það væri nice að geta keypt mér föt fyrir jólin en ætli það bíði ekki eitthvað, mikilvægara að halda jól fyrir krakkana
Ég var að hugsa um að skrifa hérna heil ósköp um hvernig farið er með gamalt fólk á Íslandi, ég hef skoðun á því, geri það seinna, get bara sagt að ég ætla ekki að vera gamalmenni á stofnun hér, né annarsstaðar
Best að halda áfram að gera eitthvað hérna, gerist ekki af sjálfu sér !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Aflatölur eða bókmenntir :)
13.12.2009 | 23:04
Það er nebblega the big question
nei nei bara svona smá djók í gangi en athyglisvert samt
Enn ein indælishelgin afstaðin, mánudagur á morgun sem er bara gott mál, verður að vísu heldur meira að gera en venjulega en það er bara gaman
Fór í kirkju í dag sem var bara gott en note to self : ekki fara í kirkju ef þú hefur farið seint að sofa kvöldið áður! Kirkjur gera mig alltaf syfjaða svo það er nú ekki á það bætandi að vera svefnlaus
Vorum að fá nýjan prest í plássið og það var verið að setja hana í gang í dag
hún á að ferma hann Ívar minn í vor, 1.apríl kl.13.30 to be exact
það verður ábyggilega hið flottasta partý! Nú hún nafna mín í Jönköping hefur náð hinum virðulega aldri 5 ára og var hún bara hress miðað við aldur og fyrri störf þegar við töluðum við hana í morgun
En ég ætla að fara að sofa snemma, hmm klukkan að verða ellefu, en það er snemma fyrir mig á þessum síðustu og verstu tímum
Hasta la Vista baby
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagskvöld :)
5.12.2009 | 00:13
Fór á samkomu í kvöld og það var yndislegt, mikið hef ég saknað þeirra
enda alveg frábært fólk þarna á ferð
Mér finns gott að vera komin heim, ég er þakklát fyrir að allt gekk vel með Axel og að hann verður alveg frískur, allt annað skiptir ósköp litlu máli! Er ekkert farin að jólast, það kemur að því eins og alltaf fyrir jólin, á hverju ári og þau koma alveg sama hvort ég er með læti og hamagang eða ekki og þau eru bara notalegur tími fyrir mig og mína! Mér líður vel, ég upplifi frelsi, ég get gert allt sem ég vil og geri það líka
OMG ég er svo jákvæð, en það er líka val og ég á val, það hef ég ekki alltaf fattað en geri það svo sannarlega núna
En allavega ætla ég að eiga ánægjulegt framhald á þessu kvöldi
Bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)