Færsluflokkur: Bloggar

Veisla :)

Sko ekki veisla í venjulegum skilningi, heldur er öll þessi vera mín í Svíþjóð ein stór veisla í mannlegum samskiptumLoL  Það er yndislegt að geta eytt svona miklum tíma með fólkinu mínu og vinum, þetta er forréttindi Heart  Það eru forréttindi að vera hjá Jóku og stelpunum hennar og sama að geta verið hérna hjá Einari, Jojo og Axel Heart  Samtímis sakna ég Ívars alveg ferlega, en núna er bara rúm vika þar til ég fer heim svo bráðum hitti ég hannSmile  Annars er ég bara nokkuð góð, þurfti samt að leita svolítið að jákvæðninni en fann hana á endanum, en shit happens, ég á líka svona moment stundumLoL   En stundum væri gott að vera þannig að maður bara æði áfram og líkin liggja eftir í slóðinni, fullt af fólki sem er svoleiðis en það liggur ekki fyrir mér einhvernveginnCool  Frábær föstudagur verður þetta og helgin alveg einsW00t

Nýtt look :)

Eins og þið kannski sjáið þá er ég komin með nýtt look á bloggið Smile  það var ekki viljandi gert, hitt bara virkaði ekki í gærkvöldi svo ég varð að breyta, en þetta er alveg að gera sig !  Er bara ferlega góð á þessum föstudegi þrettánda nóvember! Lífið er ljúft eins og Birna segir og það er alveg rétt, ferlega gaman að þessuLoL  Einar minn sagði eitt um daginn : Axel þú ættir að segja mömmu frá öllu sem þú gerir, alveg sama hversu slæmt það er þá toppar hún það, hún hefur gert mikið verri hluti en þú og ég Halo  Held þetta hafi verið vel meint, hehehe LoL  Ég elska börnin mínHeart

Gaman :)

Með Guðs hjálp og góðra mannaLoL er ég búin að finna tattoið sem mig langar í Tounge Frábært, geri í því að fá mér það asap eftir að ég kem heimWink Annars er ég góð, langbest eiginlega held ég, er að fara til Jóku og co á laugardaginn, verður gaman að því, hef ekkert komið til hennar eftir að hún flutti Smile I am multitasking, blogga, hlusta á tónlist og að hjálpa Axel að læra fyrir sænskunaSmile Hef verið að hugsa um þakklæti síðustu dagana, ég hef svo margt til að vera þakklát fyrir, til dæmis eru börnin mín heilbrigð, það er nú ekkert sjálfsagt í þeim málumHeart nú ég er kannski ekki alveg heil á geði en ég hef allavega heilsu til að sitja hérna og bulla, sem er gottShocking Ég ætla amk að njóta alls þess sem lífið hefur uppá að bjóðaWhistling Hætt í bili Smile

What if ?

What if ? Hef ehv verið að láta ehv svoleiðis ná mér upp á síðkastið, ekki að fíla þaðAngry  Hef lengi haft það sem eitt af markmiðunum í mínu lífi að hafa engin What if í gangiWink  Lifa lífinu lifandi, gera það sem ég vil gera svo framarlega sem ég finn að það er gott fyrir migSmile  Þetta hljómar óneitanlega egóistískt en það sem lætur mér líða vel er líka gott fyrir þá sem í kringum mig eru!  Veit alveg hvað er að þvælast fyrir mér, þarf að gera eitthvað í því máli, á bara ennþá eftir að finna bestu leiðina til að losna við What if tilfinninguna, hún er ekki góð fyrir mig!  Þetta snýst nú líka um að mig vantar fundina mína þar sem ég finn oftast lausnir á því sem ég er að bögglast meðSmile  Bara snilldar samkomur með frábæru fólki LoL  Anyway, note to self : Keep it simple stupidLoL

Mánudagur:)

Í stjörnuspánni minni í dag stóð að ég ætti að sletta úr klaufunum, ehh er ekki belja en jafnframt var tekið fram að aðgát skal höfð í nærveru sálarSmile aaah ég skil EKKI, hef aldrei skilið stjörnuspárTounge Anyways, það er golufjandi hérna og kallt, en gott að vera inniWink þarf samt að gera helling í dag, fer að drífa í því bráðum, já alveg strax, eftir smástundTounge vonandi eigið þið góðan mánudagSmile


Sunnudagur :)

Já það var nebbbnilega það, verð hérna út nóvember, sem er gott nema að Ívar er ekki hérna líka, sakna hans rosalega mikiðHeart En þetta verður nú sjálfsagt fljótt að líða, þarf að redda ýmsu sem hefur með Axel að gera Smile  Sakna ykkar allra þarna heima, sakna fundanna minna en ætla að eiga góðan tíma hérna með fólkinu mínuSmile

Allt að gerast hjá mér :)

Já sko, er í Linköping og akkúrat núna heima hjá Einari, er búin að sofa á sjúkrahúsinu í tvær nætur, sem er ekki mitt uppáhald. Axel líður sæmilega, fór framúr í dag aðeins, erfitt fyrir hann þar sem hann hefur ekki getað hreyft sig síðan í fyrradag.  Nú svo er þessi árátta hjá starfsfólki í heilbrigðisgeiranum að koma fram við alla eins og þeir séu fimm ára MJÖG pirrandi, ein tuðaði í mér í allan gærdag um að ég yrði nú að borða, þá svaraði ég að mig vantaði panodil og einn kaffibolla, ég veit ég er ekki skemmtileg en ég er fullorðin og stjórna sjálf hvenær ég borða.  Skrýtin þessi tilfinning að ég hafi aldrei farið neitt, búin að hitta fullt af fólki sem ég þekki og það er gaman, gott að vera hjá Einari og Jojo nú svo er Jóka hérna líka með stelpurnar og það er frábært.  En allavega þá er þetta eins gott og það getur verið, Axel er í góðum höndum þarna á sjúkrahúsinu og það er gott, fegin að hann var hér þegar þetta skeði. Over and out Smile

Hún á ammæli í dag :)) og svo framvegis :))) Til hamingju með daginn Jónína Þ :)

Já nákvæmlega, þetta er eitt af því besta við að hafa flutt heim, styttra í ættingjana, oftar hægt að hittast LoL ok gat ekki komið í afmælið hennar Ninnu í dag en kem bara asap og það hlýtur að verða fljótlegaSmile Þessi vika sem leið hefur verið mjög skrautleg, hef lifað af STÓRT barnaafmæli, fengið uppsagnarbréf, verið að drepast úr kulda, snjórinn er kominn, sennilega til að vera, hef upplifað að ég sé frek og stjórnsöm, what LoL fann þetta út alveg sjálf, en prógrammið er alveg að virka, er að finna fyrir ýmsu sem hefur verið geymt en ekki gleymt mjög lengi, sem er gott að einhverju leyti, held égLoL Wow are we getting deep hérna, nei nenni því ekki, not todayLoL En anyways, í dag þarf ég að læra helling, sem er gaman en tímafrekt svo það verður einhvernveginn soldið útundanTounge Enn og aftur til hamingju með daginn Ninna mín, eigðu góðan dag og skemmtu þér velHeartWizard

Ps: afhverju samþykkir ekki púkinn Ninnu ? Ég meina hún á nú ammæli og allt !


Jamm :)

Andlaus fyrirsögn I know LoL En hef bara þóst hafa svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til að blogga, bullshit, hef nógan tíma til að gera það sem mig langar til Tounge Ég hef tíma til að hlusta á morgunþáttinn hans KK á Gufunni á morgnana og believe you me, hægt að byrja daginn á verri hátt Wink Er annars á fullu í fjarnáminu, alveg að flippa á hljóðfræðinni, mín ekki að skilja neitt, en það er nú ekkert nýtt undir sólinni, hefur alveg komið fyrir áður að ég hafi ekki fattað neitt, hehe LoL Er bara góð og staðráðin í að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða og það er hellingur í boði þar ! Setti mér það markmið fyrir einhverju síðan að láta ekki veðrið fara í taugarnar á mér og hefur tekist nokkuð vel, að vísu er ekki farið að snjóa enn svo ......... Wink En vona bara að þessi dagur verði ykkur öllum góðurHeart

Fréttir !

Las frétt á Mogganum um styrkveitingu til íslenskukennslu fyrir útlendinga og viti menn fer þá ekki fólk af stað og kvartar yfir þessu Errm  Síðan ég flutti hingað heim í fyrra hef ég sífellt verið að hitta fólk sem kvartar yfir því að útlendingarnir vilji ekki læra íslensku, allir útlendingar sem ég þekki sem búa hér tala bara ágætis íslensku, auðvitað mismunandi góða sem er eðlilegt!  Ég hef heyrt þetta alltsaman áður, nokkrum árum eftir að ég flutti til Svíþjóðar varð mikið atvinnuleysi og þá var nákvæmlega sama umræðan í gangi, við og þeir, já þeir fengu sko ókeypis tannlækningar og örugglega margt annað sem ég er búin að gleyma sem er gott Smile  Þeir (útlendingarnir) vilja ekki læra málið, þeir rotta sig saman, já sko þetta með að rotta sig saman það gerðu amk íslendingar líka í Svíþjóð, ég hitti alveg íslendinga þar sem höfðu búið nokkuð lengi en kunnu litla sænsku, þeir umgengust bara aðra íslendinga, en til allrar hamingju voru þeir nú ekki margirSmile  Ég var útlendingur í Svíþjóð í mörg ár og það var ágætis reynsla, mæli með því Wink  Nú er þessi ræða búin, en þarf bara að bæta við að skólinn á Fáskrúðsfirði var að byrja í dag, flott nýja viðbyggingin Smile

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband