Inkompetenta djävla paperpushers !!!
7.4.2010 | 09:17
Já er að pirra mig á Greiðslustofu sem er batteríið sem á að borga út atvinnuleysisbætur
Ég er búin að vera atvinnulaus síðan 1.febrúar og átti að fá bætur í fyrsta skipti núna fyrir páska en ekkert kom inná reikninginn minn
hringdi svo þangað í gær til að spurja afhverju : nei sko þeir reyndu að leggja inn hjá mér en þessi bankareikningur var ekki að virka, nei skrýtið þeir reyndu að leggja inn á ehv reikning sem ég hafði notað síðast fyrir aldamót en ekki þann sem ég hafði gefið upp, HALLÓ eru allir sofandi þarna
Sko peningar eru overrated en maður þarf þá stundum og þetta helvítis reikningsnúmer er ég búin að skrá bæði á pappír og senda þeim og inná einhverja síðu líka svo þetta átti að vera alveg á hreinu
En þetta er allt í lagi, ég fæ sennilega borgað í dag svona um hádegi en ef þetta er ekki komið inn um tvöleytið þá er gott að ég hafi samband
það er allt í lagi, ég er atvinnulaus og hef ekkert annað að gera en að sitja og bíða í símanum því það tók mig amk korter að ná sambandi við þá síðast
Og þá er lestrinum lokið og ég ætla ekki að pirra mig á þessu meir
Góðar stundir
Athugasemdir
Þetta er nú óttalegt skítabatterí þessi stofa
Birna Dúadóttir, 7.4.2010 kl. 15:51
Já veit ekki hvað maður þarf að vera heimskur til að fá vinnu þarna
Erna Evudóttir, 7.4.2010 kl. 16:13
Á skalanum einn til tíu, mínus þrír held ég
Birna Dúadóttir, 7.4.2010 kl. 16:16
Erna Evudóttir, 7.4.2010 kl. 20:15
Þeim tekst að gera hlutina eins flókna og í Tryggingarstofnun og það þarf sko virkilega að vanda sig við það
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 07:54
Jú þetta er nottla sérsvið
Erna Evudóttir, 8.4.2010 kl. 08:29
Jahá sko
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.