Mörg börn
9.2.2007 | 07:43
Ég stend stundum sjálfa mig að því að finnast annað fólk eiga svo mörg börn, ég á 5 sem þykir svolítið mikið hér sérstaklega þar sem ég er ekki frá Afríku eða Miðausturlöndum! Samkvæmt mörgum Svíum sem ég þekki er ég eiginlega bara hálfgerður platútlendingur, meira sænsk en nokkuð annað, ekki alveg sammála þar en þetta venst! Akkúrat núna eru mörg börn hér, mín 5 og svo eru 3 sem gista, Becca frænka mín sem er í heimsókn, kærastan hans Einars (þau eru engin börn samkvæmt þeim sjálfum) og svo kemur vinur hans Ívars til að gista! Ívar og hann æfa saman Aikido og foreldrum hans fannst alveg frábær hugmynd að hann gisti hérna á hverjum! föstudegi til að fara svo með Ívari á æfinguna á laugardegi! Mér finnst það ekki frábær hugmynd, allt í lagi með krakkann en hvern einasta föstudag er kannski aðeins of mikið! Svo að núna eru hérna níu manneskjur, fimm kettir, einn hundur, ein eðla og ein skjaldbaka! Ég sem er svo mikið fyrir að vera ein með sjálfri mér
!
Athugasemdir
Jæja vina, ertu eitthvað í vandræðum með að vera ein innan um þetta allt saman
Jónína Dúadóttir, 9.2.2007 kl. 07:56
Get alltaf reynt að loka mig inná klósetti sem ég reyndar geri stundum þegar ég þarf að tala í símann
Erna Evudóttir, 9.2.2007 kl. 08:04
Og eg er maðurinn sem á þessi börn með þér ! Og þar sem að ég er að vinna á klakanum þá lendir þetta allt á þér......
Jens Hjelm (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 17:33
Jú en held ekki þú sért ábyrgur fyrir þessum þrem aukabörnum! Fínt núna næstum allir sofnaðir nema kettirnir!
Erna Evudóttir, 9.2.2007 kl. 23:47
Hehehe....självförvållat
Og á meðan á öllu þessu stendur er ég að njóta þess að flækjast um með neðanjarðarlestinni í Stokkhólmi og elta hallarverðina ALVEG barnlaus
Jóhanna Pálmadóttir, 12.2.2007 kl. 11:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.