Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
Fliss, ýl og gól við eldhúsborðið hennar mömmu !!!!
28.4.2010 | 12:35
Já mikið búin að flissa þessa dagana sem er gott, hreint af ( bein þýðing úr sænsku þarna held ég ) bráðnauðsynlegt fyrir sálina
Eitthvað að libbna yfir vinnumálum þó ég hafi nú ekkert verið pungsveitt við að gera eitthvað í því
Er bara pungsveitt við að verða eins og idolið mitt
hehehehe bara svoooooo fyndið
Þangað til hef ég bara rosalega gaman að þessu öllusaman til sjávar og sveita og milli fjalls og fjöru
Ég meina það rignir bara, snjóar ekki
það er bjart og fuglarnir syngja og það er bráðum kominn maí
Speki dagsins : Það er betra að vera gamall og vera lengi að því en að vera ungur og alltof fljótur að því
haft eftir Sæmundi á hjólinu einkavini hennar Ninnu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ammmmæli :)
25.4.2010 | 23:32
Já ef það skyldi nú hafa farið framhjá einhverjum þá á ég afmæli í dag
gaman að því þó ég hafi nú ekki gert neitt stórkostlegt úr því að vanda
Mér er minnisstætt tíu ára afmælið mitt þegar faðir minn heitinn var aðeins búinn að hella í hárið eða fá sér í tánna og dansaði uppí herberginu mínu sem var fullt af stelpum
það var hræðileg lífsreynsla, fannst mér þá, ekki það stelpunum fannst þetta bara gaman
ég hafði ekki fleiri afmælisveislur
Meira gaman var nú þegar ég varð 16 ára, Höskuldur vinur minn gaf mér spólu með BeeGees og keyrði okkur vinkonurnar svo á ball í Freyvangi
Það var snilldarkvöld man ég
já ég man það
Nú svo var hann Einar minn að vinna silfur í Stockholm open í BJJ
hann hefur ekki keppt í þessu sporti áður þeas brasilísku jiu jitsu áður svo þetta er bara snilld hjá honum
Stundum skil ég ekkert í því hvað börnin mín eru frábær, ég hef nebblega stundum velt því fyrir mér hverjum hafi dottið í hug að leyfa mér að bera ábyrgð á börnum, mér finnst ekki alltaf að ég standi undir því
en ég held ég sé að gera mitt besta og það er kannski alveg að gera sig
En læt þetta duga í bili, njótum lífsins og verum góð við þá sem eiga það skilið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Boring !!!!!
24.4.2010 | 21:00
Mér leiddist um daginn
skeður nú sjaldan og er það mikið gott, gæti endað með ósköpum ef það kæmi oft fyrir mig
Var í kaffidrykkjusamsæti í leynifélaginu í dag og þar var ma verið að ræða hvað við eigum það til að flækja hluti fyrir okkur
á meðan "hinir" virðast hafa svo stutta hugsun, fara bara frá A til B án þess að fara með hugsunina í marga hringi í kringum hausinn á sér og kafna svo næstum i öllu saman
Nú eða þessi árátta að kalla hlutina ekki sínum réttu nöfnum
að vera í tilfinningarugli er kannski bara annað nafn fyrir greddu
eins og einn góður maður sagði einusinni
En ég er flott og speki dagsins er : Allir eru ógiftir í verinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hverju vori fylgir sumar, hverju sumri fylgir haust :)))
19.4.2010 | 14:42
Er alltaf að "uppgöfga" eitthvað nýtt um sjálfa mig
Ég hef glímt við geysilegt skátaóþol síðan í æsku, hef átt mjög erfitt með að hlusta á skátasöngva og bara átt almennt erfitt með allt þetta skátadæmi, þangað til núna
Setti disk á m KK og Magga Eiríks og fyrsta lagið er Kveikjum eld og ég bara söng með og habbði gaman að
Mar orðinn svona þroskaður
líst bara vel á það
Hún er engu öðru lík þessi æskurómantík
en læt þetta duga í bili
today is the first day of the rest of your life
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hmm að stökkva eða stinga sér :)
17.4.2010 | 08:19
Já er með hausinn undir hendinni, ekki bókstaflega samt
er að flækja alla mögulega og ómögulega hluti fyrir mér og hef ekki hugmynd um hvernig mér á að líða með því
Er samt bara góð undarlegt nokk
ákveð á hverjum morgni að eiga góðan dag og oftar en ekki gengur það bara upp stóráfallalaust!!! Ég þarf ekkert að láta annað fólk ákveða fyrir mig hvernig mér líður, er alveg fær um það sjálf
Er ennþá atvinnulaus og er eiginlega alveg sama, jú væri fínt að fá vinnu svo ég ætti aðeins meiri pening en ég er ekkert að láta þetta trufla mig annars
Hef aldrei skilið fólk sem lætur það ná sér alveg big time að vera atvinnulaus, jú sko ef það þýðir að missa húsið sitt eða geta ekki gefið börnunum sínum að borða, þá hlýtur það að ná manni en ef ekkert svoleiðis er í húfi þá er nú ekki ástæða til að fara í ehv þunglyndi yfir þessu
Ég sakna strákanna minna mikið þessa dagana, fer vonandi að styttast í að við hittumst
ferlega asnalegt að hafa þá svona langt í burtu
En ætla nú samt að eiga góðan dag og finna upp á einhverju skemmtilegu að gera
Góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Inkompetenta djävla paperpushers !!!
7.4.2010 | 09:17
Já er að pirra mig á Greiðslustofu sem er batteríið sem á að borga út atvinnuleysisbætur
Ég er búin að vera atvinnulaus síðan 1.febrúar og átti að fá bætur í fyrsta skipti núna fyrir páska en ekkert kom inná reikninginn minn
hringdi svo þangað í gær til að spurja afhverju : nei sko þeir reyndu að leggja inn hjá mér en þessi bankareikningur var ekki að virka, nei skrýtið þeir reyndu að leggja inn á ehv reikning sem ég hafði notað síðast fyrir aldamót en ekki þann sem ég hafði gefið upp, HALLÓ eru allir sofandi þarna
Sko peningar eru overrated en maður þarf þá stundum og þetta helvítis reikningsnúmer er ég búin að skrá bæði á pappír og senda þeim og inná einhverja síðu líka svo þetta átti að vera alveg á hreinu
En þetta er allt í lagi, ég fæ sennilega borgað í dag svona um hádegi en ef þetta er ekki komið inn um tvöleytið þá er gott að ég hafi samband
það er allt í lagi, ég er atvinnulaus og hef ekkert annað að gera en að sitja og bíða í símanum því það tók mig amk korter að ná sambandi við þá síðast
Og þá er lestrinum lokið og ég ætla ekki að pirra mig á þessu meir
Góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
This is me, take it or leave it :)
2.4.2010 | 17:40
Já hefur verið fullt að gera síðan ég bloggaði síðast
Ívar minn fermdist í gær, virkilega gaman, flott veisla á Sumarlínu og flottir og skemmtilegir gestir
Ninna og Ingi og Ívar og Habbý komu að norðan, rosalega gaman að því, takk fyrir komuna enn og aftur
Í dag fór ég í æðruleysismessu á Stöðvarfjörð, bara yndisleg stund
og ég týndi andanum sem í smástund virtist svífa yfir vötnunum svo ég læt staðar numið
Góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)